Tvær vinnuvikur búnar.......... finnst ennþá skrýtið að vera farin að vinna aftur..........
en samt líka gaman.......... sérstaklega þar sem ég er að leysa af á skrifstofunni og er að læra alveg nýtt starf..... verð að viðurkenna að ég var soldið stressuð fyrst........ var pínu eins og hauslaus hæna einn daginn þegar ég var on my own vegna veikinda........ en þetta gengur vonandi bara vel..........
Annars er ekkert að frétta................. gengur allt bara sinn vanagang......... skvísan komin með þriðju tönnina....... sem að skýrir afhverju hún er búin að vera svona pirruð og óróleg undanfarið......... Bjartur er líka búinn að vera skrýtinn undanfarið...... er alveg hættur að ryksuga matinn sinn upp og skilur oft eftir í skálinni............ borðar eiginlega bara 1 sinni á dag í staðinn fyrir 2.......... eða borðar bara matinn sinn 1 sinni á dag..... og svo nammi og matinn hennar Elísu oft á dag......... hann er svo duglegur þessi elska að þrífa upp matinn sem sullast út um allt........ alveg æðislegt að hafa svona sjálfvirka ryksugu/moppu sem þrífur upp matarleifar....................
